....það er orðið langt síðan ég potaði einhverju hingað inn......og fólk greinilega orðið óþolinmótt hehe.....en hvað skal segja - já ég er bara ekki í stuðinu þessa dagana.....fór ekki einusinni í vigtun í dag.....er að líklega að bíða eftir að kraftaverk gerist og ég léttist um 40 kíló án þess að lyfta litla fingri - það gæti nú gerst mar.......!!!!
....en jú ég er í einhverju óstuði - næ ekki að einbeita mér að því að vinna að þessu verkefni - mikla allt fyrir mér og ríf mig niður fyrir að standa mig ekki......
......þegar ég er í svona ekki stuði finnst mér óþægilegt að blogga.....finnst það erfitt að geta ekki sýnt fólki að mér gangi vel.....
......ég hef tekið eftir því undanfarið hvað mér líður hrikalega illa þegar ég borða sykur og sullmat....fæ hausverk, ógleði og svima - verð þreytt og kem mér ekki að því að gera neitt að viti.....leggst í dvala eiginlega......ég skil bara ekki af hverju ég ríf mig ekki upp - og geri þetta bara - í eitt skipti fyrir öll????!!!!!
.........kraftaverk óskast..............
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

8 ummæli:
Blogaðu kona í staðin fyrir að borða sykur !!!???? Annars kann eg gott # nastí # ráð til að losna við mörg kg.................... Það var herna um árið sem eg losaði mig við 90 kg:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: Eg skildi ::::::::::::
Já, bloggaðu!!! Bloggheimarnir hjálpa, það er alltaf einhver/jir sem styður þig. Þú getur þetta alveg og þú veist vel að kraftaverkin gerast ef maður vinnur í þeim...og hana nú!! Áfram Ása!!!! Ég hef trú á þér.
Sammála þeim og endilega kíktu á okkur hinar ef þig vantar stuðning :) Mæli með því. Má ég setja link á þig.
Takk fyrir þetta stelpur - ég ætla að sjá hvort ráðið ykkar virkar...(Unna - ég reyndi nú skilnaðarkúrinn - en léttist því miður ekki neitt - hélst bara í sama farinu)....og jú Auður - auðvitað máttu setja link inná mig - the more the marrier.....vá Sigga hvað ég hlakka til að verða nágranni þinn ;o)
já tek undir með hinum, bloggið hjálpar og við erum hér til að styðja þig...... ekki gefast upp kv bubble
Hæ Ása mín!
Takk fyrir síðast!
Gaman að heyra aftur frá þér hérna! :)
Það var nú ekki vandamál að fara í fermingarveisluna hans H. Óla nánast sá danski.. nema ef til vill súkkulaðibrunnurinn!!! Hmmmm.... Haltu ótrauð áfram.... ættir kannski að kíkja á þetta nýja sem Halla frænka er með!! Það svínvirkaði á eldri soninn hennar!! Kveðja, Mútta Kúras
Hæ' Hó !!!!!!! Gaman væri að heyra meira um þetta sem virkaði svona vel hjá Höllu frænku...... Súkkulaðibrunnurinn var flottur í ferminguni. Áfram Ása!!!!
Halló halló... á ekki að fara að láta í sér heyra??
Þetta segir mútta, sem er búin að liggja í einhverju sleni alla helgina og drekka töfrasúpuna frönsku ( púrrusúpu ) af fremsta megni... er ekkert sérstaklega bragðgóð nefnilega. Bætti svo útí hana súputeningi til að bragðbæta og það er allt annað!! Kannski ekki heppilegt að byrja á töfrasúpu með hálsbólgu og hitavellu! Lystin ekki alveg í lagi! Kveðja, Mútta
Skrifa ummæli