Mebabeib mælirinn

föstudagur, 2. mars 2007

.......loksins (skrifað í gær 1.mars !!)

......hafði ég mig í að skrifa meira hérna inni, er nú búin að reyna mikið að komast inn, en það er eitthvað búið að vera í ólagi, þannig að ég gat ekki skrifað neitt !!!!

.....það er skemmst frá því að segja að matarræðið hefur ekki verið tekið föstum tökum síðustu viku......en ég var dugleg að afsaka mig með því að ég var ekki með ofn sem virkaði (bíddu.....hann er búinn að vera bilaður í marga mánuði.....var það eitthvað nýtt????!!! )

......já alltaf er jafnauðvelt að finna góðar afsakanir fyrir því að vera ekki að standa við það sem maður er búinn að lofa sjálfum sér....!!!! Já það er nebbnilega málið - maður lofar sjálfum sér......engum öðrum - að standa við það sem maður ákveður........og maður svíkur nákvæmlega engan annan en sjálfan sig þegar maður svíkst undan.......það er nebblega það sko!!!!

Ég er nú komin með nýjan ofn - og ég var að enda við að elda máltíð fyrir hádegið á morgun (gerði aukaskammt sem ég ætla að reyna að frysta - sjá hvernig það kemur út).....heheh, já og klukkan er orðin tíu og rúmlega það - skemmtilegur tími fyrir eldamennskuna ;o)

og já Viktoría (einsog ég sá að einhverjir átaksbloggarar kalla vigtina) - hún var vond - en svo góð við mig - ég þyngdist semsé um 1,5 kg. en léttist svo vikuna á eftir um 1,4 kg........nei auðvitað er Viktoría ekki vond - eða góð - bara ég óþekk - eða dugleg hehe

......ég finn mikinn mun á mér eftir að ég byrjaði í bootcampinu - finnst ég grennast þó ég léttist ekki mjög hratt......ég mæli eindregið með þessu - þó það sé stundum erfitt - þá er mjööööög gaman hjá okkur !!!

.....og það er æfing í fyrramálið - þannig að það er best að fara að slútta þessu í kvöld - fiskiréttur að kólna á bekknum og þvottur í bala sem bíður óþregjufullur eftir að komast á snúru

.... eigið þið góðar stundir og megi englarnir vaka yfir ykkur öllum

góða nótt

Ása Dóra

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

get rétt ímyndað mér ð bootcamp se erfitt sá auglýsingu um þetta í WC . Gangi þér vel kv.bubble

Nafnlaus sagði...

ó já maður virðist stundum vera með doktorsgráðu í afsökunum .. ;) Ég var svona líka en lét svo slag standa og sé sko ekki eftir því.

Gangi þér vel

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel! Ertu búin að sækja um húsnæði á Hvanneyri? Eða ætlar þú að fá íbúð á nemendagörðunum? Knús og klemm!

Nafnlaus sagði...

dugleg stelpa sko.. hmm en greinilega soldið óþekk :)
kv að Vestan
'oli

Nafnlaus sagði...

Sko, 3 kg. Síðan er bara að tvöfalda það og tvöfalda svo það og ... :) Go girl!

Nafnlaus sagði...

Gángi þér vel vinan
Þetta er jú ekki auðvelt en mitt mottó er að komast yfir daginn 100% og tek einn dag í einu og ætla mér að takast þetta og eru eftir 41,1 kg sem ég reikna með að taki mig 2 ár að losna við. Mér finnst þú vera mjög dugleg og óska þér alls hins besta :)

Nafnlaus sagði...

Læt þig vita það að það er komin hálfur mars. Á ekkert að fara að skrifa??????

Nafnlaus sagði...

Hæ Ása!
Er síðan alveg óvirk hjá þér... reyndi að komasr inn á hana um daginn trekk í trekk, en súkk, ekkert gekk! Sé að þú hefur heldur ekkert skrifað síðan 2. mars!
Kveðja Mútta gamla