Jæja þar kom að því, Ása fékk sér blogg síðu........og er semsagt byrjuð að blogga !!!
Ég ætla fyrst og fremst að nota þessa síðu til þess að halda utan um átakið mitt endalausa.....og vonast ég til þess að þetta verði til þess að ég nái kannski að klára málið !!
Fyrir þá sem ekki vita - þá hef ég á undanförnum árum bætt á mig alltof mörgum kílóum, losað mig við hluta af þeim en í dag sitja um 35-40 aukakíló á skvísunni........
Til að gera langa sögu stutta, þá er ég núna að æfa í Bootcamp ( sjá www.bootcamp.is ) og hef verið að reyna að halda mig við matarræði danska kúrsins eða DDV ( www.) sem gekk vel til að byrja með en einsog með svo margt hjá mér - þá hefur botninn dottið dálítið úr þessu...........ég vona að þessi síða verði enn eitt tækið til að hjálpa mér í þessari baráttu minni við fitupúkann !!!
Vááá það er sko skrýtið að vera að skrifa hérna fyrir alþjóð - en einusinni er allt fyrst !!!
eigið þið góðan sunnudag - auðvitað bæti ég við bloggið mjööög fljótlega
takk fyrir mig í bili,
kveðja Ása Dóra
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Til lukku með bloggið..
hef sko ekki áhyggjur af að þú klárir þetta ekki.. verst að þurfa að slást við alla gæjana um þig :)
kv
Oli
Skrifa ummæli